Sent með Póstinum innan 3 virkra daga

Penslar

Penslar

12.999 kr.

Availability: In stock

- +
SKU: JM-5001 Category: Tags: ,

Vandaðir förðunarpenslar sérhannaðir út frá áralangri reynslu Höllu og Skjaldar í förðun.
Penslarnir eru hannaðir með notagildi og þægindi í huga og eru með mjúkum gervihárum sem
henta vel til að bera á, blanda og fullkomna förðunina.
Með penslunum fylgir snyrtileg taska úr gervileðri, sem er þægileg til að geyma penslana
og taka þá með sér hvert sem er.
100% vegan – hannaðir af reynslu, fyrir alvöru notkun

Penslar og notkun þeirra:

#1 – Augnhára- og augabrúnagreiða / Skáskorinn pensill
Fjölhæfur tvíhliða pensill sem nýtist í ýmislegt. Augnhára- og augabrúnagreiðan er frábær til að
greiða í gegnum augnhárin og móta augabrúnirnar.
Skáskorna hliðin hentar vel til að mýkja og dreifa eyeliner- eða blýantslínu, en einnig er hægt að
nota hana til að setja eyeliner, bæta lit undir augun eða móta augabrúnir.
Hentar einnig einstaklega vel til að setja glimmergel í augnháralínuna og til að mýkja varalitablýant.

#2 – Örfínn eyelinerpensill
Mjög fíngerður og nákvæmur pensill fyrir þá sem vilja fullkomna stjórn.
Hentar einstaklega vel til að teikna hreinar, nákvæmar og örfínar eyelinerlínur og fyrir allskyns fínvinnu.
Einnig frábær til að setja glimmergel í augnháralínuna.

#3 – Stuttur skuggapensill
Þéttur pensill með stuttum hárum sem er frábær til að byggja upp dökka liti og ná mikilli þekju.
Hentar sérstaklega vel til að leggja dökkan augnskugga í skygginguna eða þétt við augnhárarótina
og síðan mýkja línuna fyrir fallegt smokey-útlit.
Frábær með duftaugnskuggum þegar þú vilt mikinn lit og góða þekju.

#4 – Skáskorinn grunnpensill
Skáskorinn pensill sem hentar vel til að leggja augnskugga yfir allt augnlokið.
Lögunin gerir auðvelt að byggja upp lit og vinna hann upp í glóbuslínuna fyrir fallega og lyfta skyggingu.

#5 – Sléttur grunnpensill
Sléttur og fjölhæfur pensill sem er sérstaklega góður til að bera glimmergel á augnlokið.
Hentar einnig vel sem grunnpensill til að leggja augnskugga yfir allt augnlokið og byggja upp fallega og jafna litþekju.

#6 – Blöndunarpensill
Mjúkur og góður blöndunarpensill sem hjálpar þér að mýkja línur og ná fallegum, jöfnum skilum.
Fullkominn til að blanda skyggingu í glóbuslínunni og skapa mjúka og náttúrulega áferð.

#7 – „Strokleður“
Alvöru „strokleðrið“ í penslasafninu! Frábær til að þurrka út eða mýkja lit ef þú ferð aðeins of langt.
Hentar einnig vel fyrir ljósustu augnskuggana þegar þú vilt létta og mjúka litdreifingu.

#8 – Hyljarapensill
Mjúkur og þægilegur pensill sem hentar vel til að bera og blanda hyljara undir augunum.
Hjálpar til við að ná fallegri, jafnri og náttúrulegri áferð.

#9 – Lítill púður- og kinnapensill
Lítill og nákvæmur pensill sem hentar vel til að setja örlítið púður undir augun og festa hyljarann.
Einnig frábær til að setja kinnalit eða highlighter á kinnbeinin þegar þú vilt nákvæma og fallega ásetningu.

#10 – Skyggingapensill
Frábær pensill til að móta og skyggja andlitið. Hentar vel fyrir dekkri lit undir kinnbeinin
og meðfram andlitslínum og blanda svo fallega saman fyrir mjúka og náttúrulega skyggingu.

#11 – Farðapensill
Fjölhæfur pensill til að bera farða á andlitið og blanda hann fallega saman.
Hentar vel til að ná jafnri og fallegri áferð og vinna farðann inn í húðina.

#12 – Púður- og sólarpúðurpensill
Mjúkur og þægilegur pensill sem hentar vel til að bera púður og sólarpúður á andlitið.
Frábær til að dreifa vörunni jafnt og skapa fallega, mjúka og náttúrulega áferð.

 

Engar reglur í förðun
Þessar leiðbeiningar eru ekki tæmandi – allir penslarnir okkar eru fjölhæfir og hægt er að nota þá á ótal mismunandi vegu.
Prófaðu þig áfram, finndu þína uppáhaldsaðferð og umfram allt: það eru engar reglur í förðun!
Have fun! – It’s Just Makeup!

 

Weight 252 g
Innihaldsefni

brush hair : synthetic hair, brush handle : birch wood, brush tube : aluminium, bag : artificial leather

Reviews

There are no reviews yet.

Only logged in customers who have purchased this product may leave a review.

You may also like…

Scroll to Top