„Hæ Halla, þetta er Skjöldur – eigum við að setja saman okkar eigin augnskuggapallettu?“
Svona byrjaði Just Makeup.
Með einu símtali. Með einni einfaldri hugmynd. Með einum augnskugga.
Og hér sitjum við – heilli vörulínu síðar.
Við ætluðum upphaflega bara að búa til eina augnskuggapallettu. En fljótlega fór hugmyndin að vaxa. Við fórum að hugsa um hvers vegna við værum að þessu og hvað við vildum að Just Makeup stæði fyrir.
Og svarið var einfalt: Förðun á að vera skemmtileg! Hún þarf ekki að vera svona alvarleg eða svona flókin – hafa gaman og leika sér.
Við höfum bæði unnið við förðun í mörg ár og höfum séð ólíkar hliðar hennar — á sviði, bakvið tjöldin, fyrir framan myndavélar, í leikhúsi, í sjónvarpi, í myndatökum og í raunverulegu lífi.
Og eitt eigum við sameiginlegt.
Við elskum makeup!
En við elskum líka allt það sem makeup getur verið.
Það getur verið smá maskari áður en þú ferð út úr húsi. Það getur verið rauður varalitur á venjulegum þriðjudegi. Það getur verið full-glam, glimmer og augnhár. Það getur verið leið til að skapa karakter, prófa eitthvað nýtt eða einfaldlega gera eitthvað skemmtilegt fyrir sjálfa/n þig.
Þess vegna vildum við skapa vörumerki sem setur ekki reglur um hvernig þú “átt” að nota makeup.
Og þannig varð nafnið til: Just Makeup – vegna þess að stundum þurfum við að minna okkur á einmitt það.
It’s just makeup!
Þú þarft ekki að vera atvinnu förðunarfræðingur. Þú þarft ekki að kunna allar reglurnar. Þú þarft ekki að vera fullkomin/n.
- Þú mátt prófa.
- Þú mátt klúðra.
- Þú mátt þurrka af og byrja aftur.
- Þú mátt vera náttúruleg/ur í dag og fara í full-glam á morgun.
Það eru engar reglur.
Við viljum að Just Makeup sé vörumerki þar sem gæði og gott makeup fara saman við gleði, sköpun og frelsi. Vörur sem hægt er að nota á sinn eigin hátt, hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í förðun eða hefur verið með makeup-burstann í hendinni í áratugi.
Við viljum gera makeup aðgengilegt, skemmtilegt og fyrir alla.
Því þegar allt kemur til alls snýst förðun ekki um hvað þú átt að gera.
Hún snýst um hvað þig langar að gera.
Have fun!
It’s Just Makeup
